Að blogga nafnlaust
Vinur minn, hann Hannes, byrjaði að blogga um helgina. Þetta eru stórtíðindi sem ég átti ekki von á og ég hlakka til að fá athugasemd frá honum hér á hofteigi þar sem nafnið hans er tengill. Það verður merkur áfangi í bloggsögu Íslands.
En ég ræsti ekki MarsEdit bara til að pimpa* Hannesi heldur vegna þess að hann hefur ekki bloggað í þrjá daga áður en einhver sendir honum skilaboð til að kvarta yfir því að Hannes bloggi nafnlaust. Í fyrsta lagi sé ég ekki hvað er að því að blogga nafnlaust. Ég hef gert það sjálfur en ég geri það ekki lengur. Það var örugglega meiri vitleysa sem ég skrifaði þegar ég bloggaði nafnlaust en munurinn liggur frekar í þroska en að nafnið mitt sé skráð á þessum vef.
Í öðru lagi finnst mér fyndið að skilaboðin, sem Hannes fékk, voru nafnlaus. Mér finnst ansi líkt að senda nafnlaus skilaboð, eða tölvupóst, og að hringja í ókunnugt fólk án þess að kynna sig. Að senda nafnlaus skilaboð til að kvarta yfir nafnleysi hljómar eins og eitthvað sem maður sem býr í glerhúsi, og sefur á grjótbing, myndi gera. Þess fyrir utan bloggar Hannes ekki nafnlaust. Hann kynnir sig á þar til gerðri síðu á blogginu sínu og það segir hugsanlega eitthvað um snillinginn sem kvartaði.
Það sem ég velti samt fyrir mér er hvaða áhrif, á það sem Hannes hefur skrifað, það hefur hvort hann skrifaði það undir nafni eða ekki. Breyttist gildi skoðanna Hannesar þegar nöldurseggurinn fékk svarskilaboð um að Hannes gæfi upp nafn?
Viðbót: Þetta var víst athugasemd á blogginu en ekki skilaboð. Tilefnið er ekki það sama en ég held að innihald bloggsins míns sé, að öðru leyti, ekki verra.
* Stafsetningarleiðréttingarforritið mitt sér ekkert athugavert við orðið „pimpa“. Mér er skemmt.
desember 10th, 2007 at 19:40
Verst að ég eyddi skilaboðunum. :) Hefði átt að leyfa þeim að standa í stað þess að verða smá pirraður og eyða þeim… ohh well. Þetta lærist.
desember 11th, 2007 at 00:58
Burtfráséð öllum siðferðislegum vangaveltum um nafnleysi á netinu, þá er mikil vöntun á því að fólk geri greinarmun á ‘nafnlaus’ og ‘vefnafn’. Flestir sem skrifa undir vefnafni eru ekkert að fela hver skrifar.
Ég skrifa kannski undir Bastarðnum, en ég þykist ekkert vera neinn annar en ég er.
Ekki frekar en Sjón.
desember 11th, 2007 at 01:10
Annað sem ég var líka að velta fyrir mér er að þegar ég bloggaði nafnlaust (en reyndar með vefnafni sem ég notaði þá víðsvegar en er að takast að útrýma smátt og smátt) þá gaf ég upp tölvupóstfang.
Svo er auðvitað spurning hvort ég sé ekki vafasöm týpa fyrst ég er rólega að útrýma gamla vefnafninu?
Hvernig er það annars með Johnny Triumph? Nom de plume fyrir nom de plume?
desember 11th, 2007 at 09:42
Svaka spes fólk sem bloggar nafnlaust… Get ómögulega skilið solleiis.
desember 11th, 2007 at 14:06
:D