Þakkir til Alþingis

Eftir að hlusta á síðari hluta umræðna um stöðu ríkiskirkju, kristni og kristnifræðslu á Alþingi hlakka ég enn meira til að flytja til Svíþjóðar. Fær þetta fólk borgað laun fyrir að spúa út heitu lofti og rugli? Þetta getur bara ekki verið verra í næsta heimalandi mínu. Ég get ekki trúað því.

22 Responses to “Þakkir til Alþingis”

  1. Haukur Says:

    enn meira að flytja til Svíþjóðar?

    HVENÆR ertu að fara að flytja til Svíþjóðar?

  2. Kalli Says:

    Ágúst 2008 er planið :)

  3. Fríða Says:

    Kalli, ertu eitthvað verri? Farðu núna. Ætlarðu virkilega að gera okkur hinum það að þurfa að lesa kvartið í þér yfir undarlegustu smáatriðum hér á landi alveg í 8 mánuði í viðbót?

  4. Kalli Says:

    Ég held þú sért að rugla saman því sem þú gerir sjálfri þér og því sem ég geri.

  5. Fríða Says:

    Þú gerir þér ekki grein fyrir áhrifum þeim sem þú hefur á fólk, alveg varnarlaust

  6. Teitur Atlason Says:

    Fríða! Hættu bara að lesa þetta blogg næstu 8 mánuði. Jafnvel lengur. Þetta er einhver sérkennilegasta athugasemd sem ég hef séð á blogginu frá því að ég byrjaði að fylgjast með. Sambland af masókimsa og aggresjón.

    Máltækið “þangað leitar klárinn þar sem hann er kvaldastur” kemur upp í hugann.

  7. Fríða Says:

    Þetta er allt í lagi Teitur, Kalli er stjúp ættleiddur litli bróðir minn sem ég hef tekið að mér að ala upp í sjálfboðavinnu og ég fer nú ekki bara sisona að slá hendinni af honum þótt hann sé stundum í nöldurgírnum.

  8. Kalli Says:

    Stundum? Ég fæddist til að nöldra.

  9. cyradis Says:

    fleeetja? :o

  10. hildigunnur Says:

    hmm, ætlaði nú ekki að vera cyradis nema einu sinni, hér…

  11. Kalli Says:

    Til Svíþjóðar í ágúst ef allt gengur eftir.

  12. Lilja Says:

    Það er ekki eftir neinu að bíða!

    Það er ekki eins og þú þurfir að skrifa masters- eða doktorsritgerð, for crying out loud, þetta er bara BA. Og ef svo ólíklega vill til að þú getir ekki nálgast heimildir gegnum rafræn gagnasöfn, geturðu fengið efni ljósritað og sent til þín frá Lsb. gegn vægu gjaldi.

    Hvað vinnuna varðar, hlýtur í versta falli að vera hægt að fá vinnu hjá sænskri útgáfu af Skúrítas. Jafnvel eitthvað ennþá betra.

    Botnlína: Ég held að ef maður finni hamingjuna, eigi maður að grípa hana. Nuff said.

  13. Kalli Says:

    Mikið vildi ég að fólk myndi hætta að hafa vit fyrir mér um hluti sem ég þekki betur en viðkomandi.

  14. Lilja Says:

    Þetta eru ekki tilmæli, þetta er álit. Eins og manni er boðið að skilja eftir í lok færslu.

  15. Kalli Says:

    Og ég áskil mér rétt til að tjá mig um álitin rétt eins og aðrir fá að tjá sig um færslurnar mínar.

  16. Lilja Says:

    Að sjálfsögðu. En að halda því fram að ég sé að reyna að hafa vit fyrir þér er ekki sanngjarnt.

  17. Kalli Says:

    Ok, ég skal þá orða það svona: það er eftir hlutum að bíða því, meðal annars, þótt þetta sé aðeins BA ritgerð ganga tillögur þínar ekki upp.

  18. baun Says:

    ahemm. ég ætlaði nú bara að tjá mig um það að mér blöskraði líka að heyra í Birni B og Guðna á hinu háa Alþingi og velti því fyrir mér, sem ég hlustaði á þá, hvort trúleysi væri e.t.v. merki um greind.

  19. Hannes Says:

    Svar til Baun.

    Ég tel að trúleysi sé frekar merki um sterka sjálfstæða skoðunarmyndun (það er orð er það ekki?).

  20. Fríða Says:

    Ég áskil mér rétt til að hafa vit fyrir Kalla. Ojá. Og já, ég held að trúleysi geti verið merki um greind, allavega eru pabbi minn og Kalli trúlausir. Já, og svo skrifaði ég 50.000 orð í nóvember og þá getur Kalli skrifað 10.000 orð í desember og komið sér svo til Svíþjóðar. Í alvöru. Heldur einhver hér að hann eigi eftir að skrifa þessa ritgerð á meðan það er hægt að hanga á skype og tala við fólk í fjarlægum löndum?

  21. Lilja Says:

    En, Mama Bear, hafa trúaðir þá minni greind?

  22. Fríða Says:

    jamm, tölfræðilega séð því Pabbi minn og Kalli hífa þá trúlausu svo hátt upp :)

Leave a Reply

You must be logged in to post a comment.